|
12.12.2008 22:08:45 / majak
Við Anna vorum búnar að tala um það í laaaangan tíma að fara í húðhreinsun og svo loksins létum við verða af því fyrir svona viku síðan. Fórum og pöntuðum tíma hjá Agy og þegar við erum að tala við hana spyr hún mig hvort ég vilji ekki litun líka og ég svona.... jaaaah... jú ætli það ekki. þá gellur í henni " yes you need it. You have no face!" ooh hún er bara of fyndin. Þannig að eftir tímann hjá henni er ég komin með þetta fína andlit! Annars er allt gott að frétta af mér. Ég er búin að setja dagsetningu á pathó og fékk undanþáguna frá immuno. Núna bíð ég bara eftir prófatímabilinu. Stelpurnar eru nýfarnar frá mér.... Ég bauð Fanney og Önnu í mat og svo komu Ingibjörg og Vaka í vídjó. Ég eldaði þessa SVAÐALEGU grænmetissúpu, bakaði dónalegar skonsur OG kanelsnúða. Ég er óð!!!
»
04.11.2008 21:51:50 / majak
jebb.... ég er ekki að ljúga þessu. Það er búið að vera sumarveður alla vikuna og spáir áfram góðu. Global warming!!! Það er nóg að gera í skólanum.... mamma og pabbi og Þórmar komu í heimsókn í október. Við vorum nokkra daga í Búdapest og nokkra daga hérna í Debó og það var svaka stuð.  Við borðuðum á miðaldar-þema-stað, skoðuðum borgina þvera og endilanga og fórum á Bodies sýninguna...  Ég fór í Halloween partý seinasta föstudag.... megastuð ... þar sem ég átti búninga-reddingu ársins.... Hvítt lak með 2 götum á og vollavolla - minns var draugur.  er ekki búin að setja inn mínar myndir þannig að ég stal þessari af feisbúkkinu hennar söru Læt þetta nægja í bili.... ætla snemma að sofa svo ég verði spræk á morgun því þá fer ég í vikulegan læknisleik. Ég fæ að klæða mig í fína hvíta sloppinn minn og vera með hlustunarpípuna um hálsinn afþví það er svo ógó-kúl. Svo fáum við að banka í sjúklinga og hlusta á hjartsláttinn í þeim... JEIJ!
»
18.09.2008 10:42:26 / majak
vá hvað það er langt síðan ég hef nennt að blogga! umm... smá yfirlit yfir sumarið: ég vann á slysó og það var geggjað gaman... eins gott því ég var þar eiginlega alltaf  alltaf fjör á slysó!!! Svo fór ég til Húsavíkur að heimsækja ömmu og afa. Við pabbi skelltum okkur í leiðinni á sjóstöng með bróður mömmu  Svo fór maður í nokkur góð partí og hékk með vinkonunum  fimleika gellurnar   Núna er ég komin aftur til Ungverjalands og byrjuðu á 3. ári. Búin að skrá mig í skólann og mæta í fyrsta pathó-krufningartímann! það er skítakuldi, fótboltinn er byrjaður og ég hendi inn nokkrum línum seinna ef ég nenni
»
12.07.2008 17:17:47 / majak
var í þessu fína afmælispartýi hjá Kristó í gær. Bröltum svo á nokkra bari í viðbót og áður en ég fór heim fékk ég mér nonna.....mmmm....nonni
»
01.07.2008 20:21:16 / majak
ég fór með mömmu í bíó í gær.... er það bara ég eða er hávaðinn í græjunum orðinn yfirgengilegur? Er kannski verið að hækka í hljóðinu samhliða þess sem þeir hækka miðaverðið, svona eins og til að gefa okkur meira fyrir peninginn? A.m.k. labbaði ég út með þann magnaðasta höfuðverk sem ég hef fengið í háa herrans.... Annars er allt gott að frétta af mér.... það er svaka stuð á slysó þó svo að við Maggi séum næstum ALDREI saman á vakt. Ég er farin að taka EKG eins og vindurinn og í dag fékk ég að setja upp æðalegg  öss hvað maður er orðinn klár
»
18.06.2008 16:35:38 / majak
ekki nóg með að ég hafi fengið hana heldur framkvæmdi ég líka.....ég notaði hára-tætarann undir handarkrikann og það var SÁRT! Mæli ekki með þessu. Annars er fínt að frétta, ég kíkti í bæinn á 17.júní og fékk mér kandífloss. Svo byrja ég að vinna á morgun á slysó.... ég hlakka til
»
13.06.2008 10:29:27 / majak
Sný aftur til landsins sem 3.árs læknanemi aðfaranótt mánudags.... og maggi líka Við erum orðin svo viðbjóðslega samstillt í þessu að það nær ekki nokkurri... ef hann væri með eggjastokka værum við á túr á sama tíma líka
»
10.06.2008 20:41:35 / majak
Ég var að bíða á trammastoppinu hjá T áðan. Strætó keyrði framhjá með ungverja sem ældi útum gluggann á trammasporið. Einmitt.... það er ekkert markvert að gerast í lífi mínu þessa dagana. 14 tímar á dag uppí T kemur ekki skapinu í lag
»
30.05.2008 13:27:41 / majak
Eftir margra margra margra daga maraþon setu, rass særi, svefnlitlar nætur, grátur og gnístran tanna að ekki sé minnst ALLT of margar makkdónalds máltíðir er ég LOKSINS búin með biochem. Lokasprettur kvalarinnar hófst með skriflegu prófi í morgun klukkan níu og lauk með munnlegu prófi klukkan hálf þrjú síðdegis. Í dag ætla ég á palma að fá mér ís... fara í þann magnaða verslunarkjarna "stopshop" (that´s right) og á morgun ætla ég í dýragarðinn!!! Núna þarf ég bara að endurtaka hryllingstímabil seinustu vikna í tvær vikur í viðbót.... Physio 13. júní og svo bara búið.
»
08.05.2008 18:50:33 / majak
ég er búin að vera að læra fyrir ungverskupróf í dag.... allt í einu fékk ég mikla löngun til þess að fara mig í gulan alklæðnað... ég held að ég sé hætt að læra í bili
»
07.05.2008 20:41:41 / majak
einu fagi minna til að hafa áhyggjur af. Ég er komin með undanþágu frá neurobiology  fékk 4 í offered grade (það er næsthæsta einkunn sem hægt er að fá) Vá ég er sátt! núna eru bara 2 stór fög til að hafa áhyggjur.
»
28.04.2008 19:52:58 / majak
Ungverjar eru voðalega mikið fyrir að fara í sleik og þá helst á almannafæri þar sem allir sjá til. Í trammanum, á "stjörnutorgi" plaza, uppi í T, á fótboltavellinum, á bekkjum hér og þar um bæinn. Um daginn þegar við vorum á fótboltaæfingu kom par inn á völlinn stillti sér upp mitt á milli vallanna og fór í sleik. Ég hef líka tekið eftir því að heitasti litur sumarsins er GULUR, allar ungversku gellurnar eru gulu. Sumar ganga svo langt að vera í gulum alklæðnaði og þær eru rosalega kúl......NOT! oh well hungary... got to love it
»
19.04.2008 20:08:47 / majak
við vorum að keppa í dag í fótbolta. Við vorum eina stelpuliðið sem tók þátt þannig að við vorum bara settar í riðil með ungversku strákunum. Við erum svo harðar! Við náðum að standa ansi vel í þeim... töpuðum samt ... ekki afþví við vorum verri... þeir náðu bara að skora meira helvítin af þeim..... Við létum gera stuttermaboli fyrir liðið okkar..... Frímök
»
10.04.2008 22:21:04 / majak
Var að spila fótbolta í svona agalega góðu veðri áðan, it was awesome....AWESOME to the MAX!
»
04.04.2008 19:21:05 / majak
Ekki nóg með að hafa slátrað 4 kynslóðum af myglu á stofuveggnum mínum, þá erum við í harðri baráttu við illvíga ungverska maura! Heilan helling af ungverskum maurum! Tókum eftir þeim í morgun og núna í kvöld breyttist eldhúsið okkar í sláturhús. ðei ar fokkin evríver! En við erum að vinna... Við beitum bæði efnahernaði sem og handafli og virðum genfarsáttmálann að vettugi. Skjótum fyrst og spurjum svo....
»
Síður: 1 2 3 ... 16
|