30.05.2008 13:27:41 / majak
Eftir margra margra margra daga maraþon setu, rass særi, svefnlitlar nætur, grátur og gnístran tanna að ekki sé minnst ALLT of margar makkdónalds máltíðir er ég LOKSINS búin með biochem. Lokasprettur kvalarinnar hófst með skriflegu prófi í morgun klukkan níu og lauk með munnlegu prófi klukkan hálf þrjú síðdegis. Í dag ætla ég á palma að fá mér ís... fara í þann magnaða verslunarkjarna "stopshop" (that´s right) og á morgun ætla ég í dýragarðinn!!!
Núna þarf ég bara að endurtaka hryllingstímabil seinustu vikna í tvær vikur í viðbót.... Physio 13. júní og svo bara búið.
»
08.05.2008 18:50:33 / majak
ég er búin að vera að læra fyrir ungverskupróf í dag.... allt í einu fékk ég mikla löngun til þess að fara mig í gulan alklæðnað... ég held að ég sé hætt að læra í bili
»
07.05.2008 20:41:41 / majak
einu fagi minna til að hafa áhyggjur af. Ég er komin með undanþágu frá neurobiology

fékk 4 í offered grade (það er næsthæsta einkunn sem hægt er að fá) Vá ég er sátt! núna eru bara 2 stór fög til að hafa áhyggjur.
»