vá hvað það er langt síðan ég hef nennt að blogga!
umm... smá yfirlit yfir sumarið:
ég vann á slysó og það var geggjað gaman... eins gott því ég var þar eiginlega alltaf

alltaf fjör á slysó!!!
Svo fór ég til Húsavíkur að heimsækja ömmu og afa. Við pabbi skelltum okkur í leiðinni á sjóstöng með bróður mömmu

Svo fór maður í nokkur góð partí og hékk með vinkonunum

fimleika gellurnar


Núna er ég komin aftur til Ungverjalands og byrjuðu á 3. ári. Búin að skrá mig í skólann og mæta í fyrsta pathó-krufningartímann!
það er skítakuldi, fótboltinn er byrjaður og ég hendi inn nokkrum línum seinna ef ég nenni